..:: Everyone has a little dirty laundry ::..
03.04.2008 21:43:16 / olof

oloflilja.bloggar.is



Nýtt blogg: www.oloflilja.bloggar.is

Ég er flutt! :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 18:27:48 / olof

We all have big changes in our lives that are more or less a second chance.

Meaningful

Hæjj..!

Páskafríið er alveg að verða búið og þetta er búið að vera yndislegt frí!! Er ekki búin að vera nógu dugleg að læra eins og ég ætlaði mér en helvíti dugleg samt sem áður! :) Reiknaði alveg helling í aðferðafræði og er alveg að verða búin með 10% samskiptaverkefni! Er ekki alveg byrjuð á ritgerðinni en þar sem ég er búin með einn áfanga og er alltaf í fríi á mánudögum þá ætti þetta að koma fljótt =)

Svo byrjar skólinn bara á morgun! Fer í einn tíma kl. 9 – 10 og þarf síðan að bíða til kl. 2 útaf ég er að fara til námsráðgjafa sem getur vonandi hjálpað mér í þessari krísu minni um hvað ég vill verða þegar ég er orðin stór!! Ég veit ekki neitt. Alltof mikið í boði.

Já gleðilega páska!! Ég fékk lakkríspáskaegg!! Og öllum fannst það svo gott að það kláraðist á 2 dögum :P og málshátturinn minn var „Augun eru spegill sálarinnar“. Finnst málshátturinn það skemmtilegasta við páskaeggið, allavega á meðan það er ekki einhver algjör steypa sem maður botnar ekkert í.

Ég var að horfa á mynd um daginn, The Orphanage sem er á spænsku og er draugamynd frá sama leikstjóra og gerði Pan‘s Labyrinth. Ég mæli með henni! Hún er hrikalega spennandi og óhugnaleg. Svo er komin ný hryllingsmynd í bíó frá sama fólki og gerði The Ring og The Grudge!! Hún heitir Shutter og er um par sem keyrir á stelpu og ákveður að gera hit and run og síðan fara óhugnanlegir hlutir að gerast ! Þetta er líka endurgerð af japanskri hryllingsmynd frá 2004. Ég er búin að sækja hana af netinu en ég kann ekki að setja textann með, ef einhver getur hjálpað þá væri það vel þegið =) Japönsku myndirnar eru alltaf betri og miklu scary heldur en þessar bandarísku. Það er líka önnur mynd að koma í bíó sem heitir The Eye, er held ég frumsýnd eftir 3 daga og Jessica Alba leikur í henni. Þetta er líka endurgerð af japanskri mynd sem er alveg hræðileg!! Og þá á scary hátt :) Ég mæli með því að þið horfið á japönsku myndirnar áður en þið horfið á bandarísku! Mér finnst það allavega skemmtilegra =)

Jæja, ég ætla að halda áfram með þetta verkefni!

Og til hamingju með afmælið Hjalti ;** :)

Later luvs ;*

Np: ..:: Gavin Degraw – I‘m in love with a girl ::..

Meaningful


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 20:13:18 / olof

Páskafrí á morgun =)

Meaningful

Hæ!

Ég hef voðalega lítið að segja. Er mjög óspennandi manneskja þessa dagana. Ég var að klára starfskynninguna á leikskólanum Teigaseli í dag. Þetta var mjög skemmtileg vinna, og er ánægð með að hafa valið mér hana =) Góður starfsandi og skemmtilegt starfsfólk þarna og yndisleg börn :) Þetta tók samt frekar mikinn tíma frá mér, var alltaf 9 og hálfa klst á dag og bara alltaf þegar ég komst, og þetta var frekar lengi að koma en við áttum að skila inn 80 klst fyrir páskafrí. Svo er það bara að byrja á ritgerðinni í páskafríinu! =)

Ég er að deyja í öllum líkamanum!! Ég fór á snjóbretti í fyrsta skipti í gær! Hef ekki snert skíði síðan í 10. Bekk í grunnskóla og aldrei fyrir það. Hjalti var svo indæll að nenna að kenna mér og hafa þolinmæðina í þetta, takk kærlega fyrir það ;** Ég ætlaði aldrei að ná þessu, var alltaf að detta en svo fór ég að geta bremsað aðeins.. verð orðin góð eftir svona 4 skipti. Við fórum semsagt í Bláfjöll um miðjan daginn, byrjuðum á því að fara í næst stærstu brekkuna, og ég held að ég hafi sjaldan verið jafn hrædd!! Og við vorum alveg heillengi niður hana, síðan fórum við í stærstu brekkuna og þegar við vorum loksins búin með hana þá var búið að loka! Hehe já ég var lengi að þessu, en þar sem ég er ekki búin að hreyfa mig mikið seinustu vikurnar þá tók þetta á líkamann, og ég finn alveg þvílíkt fyrir því núna. Var alveg dofin úr þreytu þegar ég kom heim í gærkvöld ;) En þetta var algjör snilld og er mjög fegin að hafa farið þetta, útaf þegar ég sá fólkið koma niður brekkurnar þá langaði mér helst bara að fara heim, er svo hrikalega lofthrædd. En þetta var góður dagur :)

Það var kokteilparty á föstudaginn heima hjá Helgu Margréti. Það var frekar fámennt en samt alveg rosalega gaman. Það var fáklætt er fallegt þema, og auðvitað mætti ég í korseletti og í stuttum buxum ;) En þetta var algjör snilld, fórum í marga skemmtilega leiki og ég mun bráðum henda inn myndum inná myspace ;) Síðan fór ég í bíó á laugardaginn á 10.000 BC sem er alveg ágæt =) það voru margir í bíó þannig að við vorum frekar neðarlega og það er virkilega erfitt að vera svona nálægt með linsur .. man það næst ;P En í auglýsingunum þá var verið að sýna trailerinn af nýjustu Batman myndinni, og þar var Heath Ledger sem Joker Face og vá hvað hann er svalur í þessu hlutverki!! Hlakka til að sjá þessa mynd.

En ég ætla að læra fyrir morgundaginn og síðan er ég komin í páskafrí :D

Later luvs ;**
                                                                                                                     Love


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 19:04:12 / olof

" It's a day I thought I'd never get through "



Ég er með eina játningu... ég hlusta á Daughtry á hverjum degi, hlusta á allan diskinn í gegn og set hann stundum aftur á. Og svo stundum aftur. Þetta er uppáhalds læritónlistin min! Alveg frábært að hlusta á þetta á meðan ég er að læra og syng svo með í flestum viðlögum. Chris Daughtry keppti í American Idol í fyrra og lenti held ég í 3. sæti. Ég hélt með Chris en einhver sæt stelpa var í öðru sæti og gráhærður gaur í 1. sæti sem ég hef aldrei heyrt í síðan. Daughtry vann síðan einhver tónlistarverðlaun sem bestu nýliðarnir :haha: Þessi diskur er svona rómantískt rokk/popp og þessi gaur syngur alveg Guðdómlega!!!

Allavega þá ætla ég að setja texta við eitt lag sem heitir Over you og er ábyggilega eitt besta Break-Up lag sem ég hef heyrt!! :)

Over You

Now that it's all said and done
I can't believe you were the one
To build me up and tear me down
Like an old abandoned house

What you said when you left
Just left me cold and out of breath
Fell to far, was in way to deep
I guess I let you get the best of me

Well I never saw it coming
I should of started running
A long long time ago
And I never thought I'd doubt you
I'm better off without you
More than you, More than you know
I'm slowly getting closure
I guess it's really over
I'm finally getting better
Now I'm picking up the pieces
and spending all of these years
Putting my heart back together
The day I thought I'd never get through
I got over you!

You took a hammer to these walls
dragged the memories down the hall
Packed your bags and walked away
There was nothing I could say
When you slammed the front door shut
A lot of others opened up
So did my eyes so I could see
That you never were the best for me

Well I never saw it coming
I should of started running
A long long time ago
And I never thought I'd doubt you
I'm better off without you
More than you More than you know
I'm slowly getting closure

I guess it's really over
I'm finally getting better
Now I'm picking up the pieces
And spending all of these these years
Putting my heart back together

It's a day I thought I'd never get through
I got over you

Ég elska þennan disk og mæli með honum ;)



» 5 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 12:41:31 / olof

"With these waves crashing over my head"



Hæ!

Jæja... ég er að reyna að læra fyrir þroskasálfræðipróf sem er á miðvikudaginn og við eigum að lesa 10 kafla í risastórri bók sem er á ensku :S En þetta er allt að koma =) Þessi áfangi heitir Þroski barna og unglinga og þetta er allt svona sálfræðitengt þótt ég sé ekki í sálfræðinámi :) Er að lesa um Freud, Selman, Vygotsky og Piaget og alla þessa karla, og svo allt sem tengist börnum og þroska þeirra =) Mjög skemmtilegur áfangi.

Eftir þessa önn verð ég búin með eitt ár í háskólanum, og ég veit ekki hvort ég vill halda áfram í þessum námi eða taka 60 einingar í einhverju öðru!! Það er alltof mikið sem mig langar að læra!! T.d. mannfræði, sagnfræði, fornleifafræði, kvikmyndafræði, bókmenntafræði, sálfræði, ferðamálafræði og pínu í lögfræði! Mannfræðin hljómar best í dag, en það gæti verið eitthvað annað á morgun :P En ég hef það sem eftir af þessari önn plús allt sumarið til þess að ákveða mig. Þoli bara ekki að vera svona týnd.

Árshátíðin var á seinustu helgi og hún var æði!! Sigurrós, systir Guðrúnar greiddi mig og málaði, fyrirpartíið byrjaði síðan kl. 5 heima hjá Guðrúnu og mættu þessir 2 uppeldisfræðinemar í partíið, svo voru 2 sem mættu aðeins of seint, en já það var léleg mæting hjá fyrsta árs nemum!! Við vorum 7 nemar á fyrsta ári! En við gerðum bara gott úr því, vorum með snilldar skemmtiatriði sem bjargaði því :) Maturinn var rosalega góður en DJ-inn var ekki svo góður. Hugsið um Mörkina * 100 sinnum leiðinlegri tónlist... sorry ;) En þetta var ágætt :P Svo fékk ég far með Birnu Björk heim og það var æði að komast í mitt eigið rúm eftir Reykjavíkurdjamm. Og ég vann í happdrætti!!!!! Ótrúlegt en satt, þá vann ég Lush baðdót :D og ég vinn aldrei neitt!?! En þar sem ég á ekki bað þá verð ég víst að fá það lánað einhversstaðar ..

Svo bankaði mamma hjá mér snemma daginn eftir og spurði mig hvernig var á árshátíðinni, og ég steinsofandi svaraði „æji bara öðru meginn“. Og mamma spurði hissa hvað ég væri að meina. Og ég svaraði „ohh okei báðum meginn!!“ og mamma spurði báðum megin hvað?! Og ég svaraði mjög pirruð „Kexið!!?!“ og mamma hristi bara hausinn og lokaði hurðinni. Ég man ekkert eftir þessu, en hún sagði mér þetta síðan seinna um daginn. Ég var greinilega að dreyma Homblest auglýsingu sem ég man ekkert eftir og ég borða ekki einu kex!? En þetta er bara fyndið :)

Í kvöld er bara rólegheit og lærdómur, kannski smá rúntur. Á morgun ætla ég síðan á FVA leikritið með Ásu og Vésteini!! :D  Hlakka mikið til. Síðan er systravídjókvöld heima hjá Röggu,ætlum að kíkja á Meet the Spartans og borða eitthvað óhollt, útaf ég er búin að vera svo dugleg þessa vikuna :)

Ég verð að kvarta smá. Ég fór á bókasafnið fyrir tveimur vikum og tók 3 skáldsögur. Eina bók eftir Stephen King og tvær bækur eftir Patriciu Cornwell. Þær heita Líkamsleifar og Allt sem eftir er. Ég kláraði bókina Allt sem eftir er í gærdag og ætlaði að byrja á Líkamsleifar. Svo byrjaði ég og fannst þetta voðalega kunnulegt, þá er þetta sama bókin!!! Bara með öðru heiti, annarri kápu og það var annar þýðandi!! Nákvæmlega sama sagan! Fannst þetta pínu fyndið.

Síðan er ég að fara að fá ný gleraugu! Eða nýja umgjörð, útaf þessi meiða mig alveg hrikalega á eyrunum, er farin að fá sár :( Og ég held að ég sé að fá endajaxl!! En ég neita að fara til tannlæknis fyrr en eftir páska, annað kemur ekki til greina..

En ég ætla að halda áfram að læra fyrir þetta próf :P

Later luvs ;**

Np; ..:: Lifehouse - Storm ::..
                                                                                                                                                                                                            
Meaningful


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 11:07:40 / olof

"You promised me everyting"

 

Hæ!

Lítið búið að gerast, en ég skrifa þessa færslu fyrir Röggu systur :P Ég er bara á fullu í skólanum, var að koma úr prófi fyrir hálftíma í aðferðafræði 1, sem er ekkert nema tölfræði, stærðfræði og formúlur. Það gekk ágætlega.... það er samt dregið frá fyrir vitlaust dæmi, og þar sem þetta er krossapróf þá er erfitt að sleppa frekar en að giska á svar. En þetta kemur í ljós eftir viku :) Næsta próf er síðan 12 mars í þroskasálfræði. Þá eru bara 2 ritgerðir eftir, 1 hlutapróf og 2 lokapróf og 1 verkefni eftir ! Þetta er ekkert chill.

Á föstudaginn er árshátíð í uppeldis- og menntunarfræðiskorinu! Við byrjum á því að fara í fyrirpartí sem er ennþá ófundið og við eigum að mæta kl. 5, síðan sækir rúta okkur öll og keyrir okkur á árshátíðina! Það verður góður matur, flott skemmtiatriði og DJ! Vorum að velja skreytingar fyrir helgi, salurinn verður geggjaður þegar hann verður klár :D Og þar sem ég er formaður þá sit ég hérna og reyni að selja miða útaf það eru alltof fáir fyrsta árs nemar sem eru búnir að kaupa miða!! Síðasti séns í dag! ;)

Ég er búin að vera voðalega góð og dugleg síðustu helgar, ekkert djamm, bara rúntur, vídjó og lærdómur! Ætla svo að skemmta mér aðeins á árshátíðinni og svo ekkert fyrr en bara einhverntímann þegar eitthvað er að gerast. Ætla að vera dugleg í ræktinni þegar ég fæ glænýju Nike fötin mín frá BNA ;) þýðir ekkert að drekka og djamma ofan í það !

Okei í síðustu færslu var ég búin að lesa 6 bækur eða eitthvað. Er komin upp í 10 núna og er að lesa Gemsinn eftir Stephen King! Og sjitt hvað hún er hrikalega spennandi!! Ef þið fílið uppvakningamyndir eða heimsendamyndir jafnvel, þá ættuð þið að lesa þessa bók!

Ég var líka að horfa á mynd á laugardaginn sem heitir Fragture og Ally McBeal leikur í henni, þessi mynd kom ekki í bíó en þetta er ágætis mynd, góða draugamynd! Mæli með henni. Varð oft hrædd (en það er ekkert að marka), en þetta er nokkuð hræðileg mynd!

Hey ég horfði á Jumper um daginn!!! Og O.C gellan var í alveg eins rauðri kápu og ég á !! :D Eyðilagði reyndar svoldið myndina fyrir mér útaf núna er þetta toppurinn af myndinni eiginlega ;) Núna á ég alveg eins síma og tölvu og í Gossip girl og jakka í Jumper.... tilviljun?? :P

En ég ætla að gera eitthvað, selja miða og læra eitthvað!

Later luvs ;**
Np: ..:: The Killers - Romeo And Juliet ::.. 

Meaningful


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 13:40:19 / olof

You're all I want, You're all I need

 

Jæja... þá er eflaust erfiðasta stund þessa árs liðin. Ásdís hefur ákveðið að flytja til Bandaríkjanna í heilt ár, í 365 daga og ég er strax byrjuð að telja niður. Þetta var erfitt. Ef það er eitthvað sem ég hata, þá er það að kveðja manneskju, jafnvel þótt það sé ekki nema í nokkra mánuði. En þetta verður vonandi fljótt að líða, þetta venst, og þegar hún kemur heim þá er planið að flytja í bæinn saman og vera duglegar í háskólanum :) ;* Síðan er Birkir kannski að fara út, og þá þarf ég að kveðja aðra manneskju sem ég elska og verður í burtu heillengi!! Nenniði að hætta þessu?!  Þið eigið bara að hugsa um mig og hvernig mér líður og elta mig og vera hjá mér!! :P En svona er lífið.

Lokatónleikar I Adapt voru á laugardaginn og sorry þið sem misstuð af þeim! Reyndar var þetta frekar sorglegt, seinustu tónleikarnir, þeir búnir að spila saman í 7 ár. Eins og ég sagði, það er erfitt að kveðja. En þetta var ótrúlega gaman, alltaf gaman að horfa á Birki upp á sviði og allir að syngja með, rífa mækinn af honum og hoppandi á hann :Þ Síðan dró ég Bjarka Jens og Hjalta í eftirpartí á Klassik Rokk og tókum nokkra leiki í pool og auðvitað vann ég einhvern leikinn ! Við áttum einu sinni risastórt pool borð niðrí bílskúr en því miður þá seldum við það útaf það tók frekar mikið pláss. En það var svo gaman að eiga þetta, verst hvað ég var lítil þá.

Í gær sóttu mamma, pabbi, Jóhann og Ragga mig heim til Hönnu og við kíktum aðeins í Smáralindina að skoða útsölurnar. Ótrúlegt en satt þá fann ég ekki neitt, var ekki beint í stuði en ég keypti allavega mynd eftir Stephen King. Hún heitir 1408 og er virkilega góð. Mæli með henni. Fínasta hrollvekja. Síðan buðu foreldrarnir okkur í bíó! Hjónin fóru á Brúðgumann á meðan við systkinin fórum á Cloverfield. Ég fór á þessa mynd með litlar væntingar og bjóst við að verða sjóveik eftir 5 mínútur. Þessi mynd er tekin upp eins og Blair witch project, s.s. það er einn gaur sem var með myndavél fyrir tilviljun og tók það upp þegar ráðist var á New York. En ég verð bara að segja að þetta er með þeim betri skrímsla/hamfara myndum sem ég hef séð. Það er eins og ég hafi verið á staðnum með þeim og þessi myndatökustíll gerði myndina bara ennþá betri. Þetta var þvílíkt raunverulegt. Mæli með henni!! Mynd sem ég ætla allavega að kaupa þegar hún kemur út á DVD.

Ég er byrjuð í starfskynningu á Teigasel. Þetta er áfangi í skólanum, við eigum að vinna 80 klst og skrifa ritgerð um það sem við gerðum. Þetta er ótrúlega fínt, og yndislegir krakkar. Fór reyndar ekki í morgun, enda mikið að gera í skólanum, ritgerðarskil og ömurleg stærðfræði sem ég er virkilega léleg í. En þetta reddast. Ég verð þá bara að leggja ennþá meira á mig!

Svo er ég núna á 6 bókinni minni síðan 24. Desember. Ég er búin að lesa Öskju, Dauðrabýlið, Eldveggur, Flugdrekahlauparann, Bláklæddu stúlkurnar tvær og ég er núna að lesa Harðskafa! Ég elska það að lesa! Það er fátt betra heldur en að hverfa ofan í bók og gleyma stað og stund. Mín flóttaleið.

En ég ætla að halda áfram að skrifa ritgerð..

Ég mæli með Cloverfield, 1408 og sæta gaurnum í Jumper!!

Ég mæli ekki með að fólk sé að fara, magaverkjum og söknuði.

Later luvs ;**

Np: ..:: Lifehouse - Everything ::..


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 12:50:21 / olof

Ég lifi í draumaheimi

 Party

Ástfólk mitt úr Hollywood, sönn saga:

 

Jude Law er bílstjórinn minn en þegar ég er í mikilli hættu þá er Jason Statham bílstjóri/hitman fyrir mig.

Gerald Butler er lífvörðurinn minn. (ásamt sínum 300 manna her)

Bruce Willis er ástin mín og hann myndi ganga aftur fyrir mig, ég sver það.

Brad Pitt er viðhald nr. 1 en hann kemur bara til mín þegar hann er eitthvað ósáttur við það að eldast og langar í yngri stelpu.

Channing Tatum er danskennarinn minn.

Johnny Depp er bátsmaður og garðyrkjumaður hjá mér.

Joaquim Pheonix sér um mitt skemmtanalíf og öllu því sem viðkemur (skemmtistöðum, hvað ég drekk, við hvern ég tala).

Justin Timberlake er stílistinn minn og syngur mig reglulega í svefn.

Tay Diggs er heimilislæknirinn minn.

Patrick Dempsey er skurðlæknirinn minn.

Eric Dane er lýtalæknirinn minn.

Justin Chambers vinnur með þeim en er alltaf að reyna við mig. Vandræðalegt...

Penn Badgley er ástmaður minn, en ég er ógeðslega skotin í honum, held að hann viti semi af því...

Chace Crawford er helgarviðhaldið mitt og afsökunin til þess að fara til útlanda..

Ed Westwick er dótið mitt.

Elisha Cuthbert er stelpan í næsta húsi.

Megan Fox er herbergisfélagi hennar.

Shia LaBeouf er aðferðafræði/stærðfræði tutorinn minn.

Freddy Ljungberg er íþróttakennari minn.

Heath Ledger er engillinn minn <3

Jesse Metcalfe er flugmaðurinn minn.

Kim Kardashian er upp á vegg hjá mér.

Brian Austin Green er einkaþjálfari minn.

 Já ég lifi í draumaheimi... 

Talandi um drauma þá dreymdi mig í nótt að við vorum nokkrar manneskjur að skipuleggja tónleika eða partí inní einhverju íþróttahúsi.. síðan leit ég upp á loftið og sá að loftið var orðið svona rauðglóandi og mér leist ekkert á þetta og ég og einn annar fórum út, síðan hrundi loftið að hluta til, hékk bara í loftinu og fólk hljóp út en það voru 2 strákar sem voru eftir og byrjuðu að dansa undir hálf hrunda loftinu!! Og ég hugsaði hvað þeir voru ógeðslega svalir og lifðu í hættunni... Svo er ég alltaf að dreyma um risaeðlur og þá sérstaklega snareðlur, en þær eru hræðilegar!! Ég kenni bróður mínum um þessa hræðslu en hann var með risaeðluæði síðan hann var svona 2ja ára.. ég veit hvað þessar eðlur heita, hvað þær éta, hvernig þær drepa og þetta er að haunta mig. Þær hlaupa svo hratt og eru svo snöggar!! veit ekki hvað ég myndi gera ef ég myndi rekast á eina svona...

 Svo er kokteilparty í kvöld! Hlakka svo til, er komin með kjól, á eftir að fara í ríkið, reyni að glíma við hárið á mér og svo verður djammað ;) Ásdís er að fara til Bandaríkjanna eftir 10 daga og Bergþóra er að fara til Ungverjalands þannig að þetta verður eitt af síðustu hátíðarhöldum með þeim í langan tíma. Og ég ætla að ræna myndavélinni frá mömmu og pabba þannig að ég set inn myndir um helgina. En ég ætla að fara að fylgjast með í tíma..

Later luvs ;**

Party


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 13:19:22 / olof

<3 Heath Ledger ;*

 Heath Ledger dó bara í gær!! Mér hefði aldrei dottið það í hug, þótt það sé nú skrítið, það geta allir dáið, en hann var samt svo sætur og góður leikari... bjóst frekar við því að Britney myndi deyja eða Sean Connery (datt ekki í hug neinn annar leikari sem er gamall) en ekki Heath Ledger. Hann var byrjaður að leika í nýjustu batman myndinni og átti hann að leika Jókerinn. Ekkert smá svalur í því hlutverki, allavega sem ég hef séð af myndunum af honum. Hann átti 1 eða 2ja ára stelpu, var held ég eitthvað að deita Rihönnu en ég er ekki viss... en þetta er bara svo sorglegt og leiðinlegt!! hann var bara 28 ára! :(

En svona er lífið... það getur stundum verið ömurlega ósanngjarnt!
En hérna eru myndirnar sem hann hefur leikið í :
En yfir í aðra sálma, One Tree Hill er byrjað aftur!! 5 sería! En þau útskrifuðust semsagt úr High School í 4 seríu og svo í 5 seríu þá er það 4 árum seinna! Það sem truflar mig mest við þessa þætti er að Chad-Michael Murray hélt fram hjá Sophiu Bush með Paris Hilton!! Og hún hefur þurft að leika á móti honum alveg síðan og það er greinilega ekkert að fara að hætta! pældu í því að vera nýgift mótleikara sínum og svo skilja við hann eftir framhjáhald og leika svo á móti honum heillengi og þurfa meiraðsegja að þurfa að kyssa hann og deita hann í þáttunum!! Hún er hetja. Já í 5 seríu er Kevin Federline að leika einhvern gaur í hljómsveit, og sjitt hvað hann er hrikalega ljótur og ömurlegur leikari!!! Hann kom víst alltaf of sein og freðinn á tökustað og hann er bara glataður og of svalur fyrir lífið! ;)
En ég kem bráðum með einhverja almennilega færslu um mig, ef ég nenni.. hef ekkert að segja um mig og það er ekkert nýtt að gerast! nenni ekki að segja hvað ég gerði í gær og í dag og um jólin útaf það er ekkert gaman. Miklu skemmtilegra fyrir mig að lifa í bíómyndum og í Hollywood og segja smá frá því :P á eftir að segja ykkur um mitt ástarlíf við fræga fólkið... !

» 9 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 11:35:42 / olof

Joaquin Pheonix <3

The image “http://www.celebrityshack.com/images/stories/male-celebrities/joaquin_pheonix/thumb.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

http://www.windoweb.it/desktop_foto/foto_attori/foto_attori_Joaquin_Pheonix.jpg

Vill bara benda á það hvað Joaquin Pheonix er sjúklega heitur og þetta ör gerir hann ennþá heitari. Signs er góð mynd, Gladiator er góð mynd, og nýjasta myndin hans, We own the night er algjör snilld! :) ég er að fíla þetta. Er í tíma núna, kem með færslu um helgina =) Vill að lokum benda á það hvað strætóbílstjórar geta stundum verið eigingjarnir og frekir og tillitslausir. Ég var á leiðinni heim í RÉTTA strætónum sem á að ná rútunni á leiðinni heim. Og þegar ég kom í Mosó þá var hann bara búinn að stinga mig og 7 aðrar manneskjur af útaf við vorum víst 10 min of lengi. þannig að við þurftum að bíða í klukkutíma á KFC og kom heim kl. 8!! Er ekki sátt með þetta. :evil:

Later luvs ;**


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 02:18:39 / olof

I' don't want to wait.....

http://berglovespizza.files.wordpress.com/2006/08/dawsons_creek14.jpg

Hverjir muna eftir Dawson‘s creek þáttunum?? Og hversu heitt elska ég og sakna þeirra!? Við vorum eitthvað að tala um þessa þætti um daginn og ég er búin að vera með þá á heilanum síðan. Ég ákvað þá að fara á youtube og leita af þessum þáttum og það er til hellingur af brotum úr þeim! :D ég er búin að horfa á þetta í allt kvöld! Þessir þættir voru alltaf á stöð 2 og þetta voru uppáhaldsþættirnir mínir á eftir Lois & Clark auðvitað. Ég missti aldrei af einum einasta þætti, og þegar ég fór til Noregs þá tók mamma þessa þætti upp fyrir mig í hverri viku í hálft ár!

Katie Holmes er alltaf sæt og saklaus með krúttlegt bros, ég fílaði aldrei Michelle Williams útaf hún var alltaf að reyna að taka Dawson af Joey, en Joey var alltaf svo skotin í honum, en hann varð geðveikt clueless og vissi ekki neitt, byrjaði svo bara með Michelle en svo enduðu Dawson og Joey saman! En svo verður Joshua Jackson eða Pacey skotin í Joey og þau enduðu saman eftir þvílíkt drama en það var bara krúttlegt. Það er til alveg endalaust af myndböndum með þeim, öll þeirra saga í 5 seríum! En ég hætti að horfa eftir 3 seríu útaf þau fóru öll bara eitthvert í burtu, einhverjir dóu, byrjuðu í nýjum skóla og svo kom nýtt fólk!! Það var líka held ég hætt að sýna þetta á stöð 2 og ég er rosalega léleg að fylgjast með rúv.

Ég verð samt að benda á eitt, að Pacey átti lítinn bát, sem hann skýrði true love og þá er hann að meina Joey, alveg eins og Seth í the o.c. sem skýrði sinn bát Summer, sem var elskan hans. Annað, Joshua Jackson leikur í Urban Legend sem er fínasta hryllingsmynd. Hann er í bíl með stelpu sem hann er að reyna við, fer út að pissa og endar dáinn fyrir ofann bílinn, þið vitið hvernig sagan er =) Allavega þá er hann að fikta eitthvað í útvarpinu og þá kemur lagið I don‘t want to wait sem er theme lagið í Dawson‘s creek! Finnst það fyndið atriði. Og ég elska hvernig þau tala! Ég veit samt ekki hvað þau eiga að vera gömul í fyrstu seríunni en í 3 seríu eru þau 16 ára og þau tala svo geðveikt fullorðinslega, eða mér fannst það þá en ég dýrkaði hvað þau töluðu heimspekilega um allt ;) Ég var alltaf skotin í Pacey og vildi að Joey myndi byrja með honum.

Vá hvað maður gat lifað sig inn í svona þætti. Alveg yndislegt að rifja þetta upp! Ég vildi óska þess að geta horft á þetta aftur, þannig að ef einhver á Dawson‘s creek seríu á dvd þá má hinn sami endilega lána mér :P Sama með Popular sem eru yndislegir stelpuþættir!  :) ætla að koma með eitt atriði sem ég man svo vel eftir! ;) Þetta er eftir eitthvað ball eða skemmtun, og Joey fær sér aðeins of mikið að drekka, Dawson er að fylgja henni heim og setur hana í sófann og hún kyssir hann í fyrsta skipti :

DAWSON: What is it? What's wrong?
JOEY: I don't know. There's something not right about this.
DAWSON: What? I thought that this is what you wanted. I mean, come on Joey. The night you were drunk and you kissed me -- you knew who you were kissing.
JOEY: I knew who I was kissing -- but you didn't.
DAWSON: What?
JOEY: It's my own stupid fault...dressing up, playing the princess. Come on, Dawson, you and I both know this isn't me.
DAWSON: Of course it is.
JOEY: I thought that this is what I wanted. For you to see me as beautiful. For you to look at me the way you look at Jen. But the truth is, that's not really what I want at all. I want you to look at me and see the person that you've always known and realize that what we’ve had is so much more incredible than just some passing physical attraction. 'Cause you know what Dawson? It's just make-up -- and hairspray -- and tomorrow I'll be back to being Joey. Just Joey. The too tall girl that lives on the wrong side of the creek.

Haha ég er sjúk, ég veit það. En það er alltaf skemmtilegt að rifja svona upp.

Later luvs ;**


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 23:19:30 / olof

Gleðileg Jól ;**

 

Hæjj...!! 

Vúhú!! Ég er búin í prófum og komin í jólafrí!!!!!! Veit ekkert hvað ég á að gera við frítímann and I‘m loving it! Ég er búin að ná 3 áföngum, einn var próflaus og fékk 8 í honum, hitt prófið var 5. Nóv og fékk 5 í því og svo fékk ég 7 í hinu prófinu sem var 11. Des :) daginn eftir það próf þá ákváðum ég, Hanna og Birkir að fara í einangrun norður á Hauganes! Seinasta prófið okkar var nefnilega 19. Des og þetta er erfiðasta og asnalegasta prófið, áttum að lesa 2 bækur, 20 kafla og 15 greinar og svo kæmu nokkrar spurningar og við áttum að svara 6 spurningum af þeim.. algjör hryllingur. Þannig að Hanna reddaði okkur húsi sem er alveg eldgamalt, og notað bara sem sumarbústaður fyrir fólk sem býr útí Kaliforníu og kemur hingað einu sinni á ári og þar er ekkert netsamband og ekkert sjónvarp og við vorum þar í 6 daga í góðum fíling að lesa og lesa. Við hefðum samt getað lesið miklu meira en hey, það er alltaf hægt! En þetta var góð ferð, tókum Heru, hundinn hans Birkis með okkur og það var algjör snilld að hafa hana. Smakkaði í fyrsta skipti sojakjöt útaf Birkir er grænmetisæta og það var bara mjög gott! Fórum aðeins út á lífið á Akureyri, kíktum á tónleika og á einhverja skemmtistaði og það var ágætt.. er samt lítil skemmtistaðamanneskja, sérstaklega  ef ég þekki bara eina manneskju :P En svo fórum við til rvk og í prófið eftir að hafa týnt bíllyklunum á Hauganesi en þeir fundust á endanum og mér gekk ekki vel!! Kvikindislegt próf! Gat bara 60% af því! En ég vona að það sé nóg útaf annars þarf ég að taka sjúkrapróf í ágúst og læra í sumar!!! Nenni því ekki en kannski er það nauðsynlegt :( 

Á fimmtudaginn fórum við Ásdís á Xmas og vá hvað Mugison er góður!!! Þetta var geðveikt.. Sign voru líka góðir en ég var ein um það af mínum vinum:P síðan kom mynd af mér og Ásdísi í fréttablaðinu, ógeðslega svalar vinkonur ;) svo á föstudaginn var svo próflokadjamm á Nasa þar sem Páll Óskar var að spila og það var mjög gaman, fyrir utan að hafa þurft að standa í röð í klukkutíma í hagléli, hlustandi á eitthvað fífl öskra og það endaði með því að ég fór að öskra á hann, við fórum að öskra á hvort annað og síðan loksins þagði hann í svona 10 min.. en þetta var gaman :P svo á leiðinni heim voru einhver rasistabörn(17 ára) í góðum fíling að vera leiðinlegir við stelpu sem var að leita að leigubíl og ég endaði með því að rífast við þá (vill halda því fram að ég hafi unnið rifrildið;) og svo fékk ég að gista hjá Guðrúnu en við vorum komnar heim svona um hálf 6 leitið ! en þetta var fínt... verð samt að fara að halda kjafti við fólk sem ég þekki ekki neitt. Í gær ætlaði ég svo að djamma en nennti því ekki, fór heim um 12 leitið!

Holidays

Það er hefð hjá mér og pabba að fara út á röltið á þorláksmessukvöld ef veður leyfir og kaupa jólagjöf handa mömmu! Það er alltaf svo mikil stemning, fullur bærinn, maður hittir alltaf eitthvað fólk sem maður þekkir og svo kemst maður loksins í jólaskapið. Á aðfangadag var svo farið uppí kirkjugarð að leggja á leiði, og síðan komu jólin :) og ég fékk roooosalega góðan jólamat, og flottar gjafir =) t.d. bækur, ilmvatn, body lotion, body butter, body shower gel, myndaramma, rúmföt, föt, nærfatasett, hálsmen og eitthvað meira:P Síðan var haldið til systur minnar og síðan til Ásdísar þar sem við fórum í nýjasta party&co spilið sem er algjör snilld!! Ég og Bergur rústuðum því auðvitað en við vorum að spila til hálf 5!

Í gær fór ég á snjósleðann með pabba, Unnari, Jóhanni og Patrek uppí skógrækt. Við vorum með 2 snjóþotur aftaná og við skiptumst á að keyra sleðann og sitja á þotunni og gvuð minn góður hvað ég er með miklar harðsperrur eftir þetta!!! Það er alveg ótrúlega erfitt að halda sér á þotunni og reyna að detta ekki! Síðan fór ég á jólaball á Breiðinni, sem var alveg ágætt.. fór samt snemma en það verður sko tekið á því um áramótin!! ;) ég er samt mikið á móti því að það sé verið að ljúga og þykjast ætla að hafa opið á efri hæðinni og gera það svo bara ekkert! En ég kom síðan heim og var eitthvað slöpp með hausverk, illt í maganum, harðsperrur og beinverki og er ennþá pínu slöpp. En ég verð orðin góð fyrir mánudaginn =)

En ég ætla að fara að lesa Ösku og reyna að fara snemma að sofa. Þetta hafa verið svolítið skrítin jól þannig að ég hef ekki sofið rétt og mikið. Þeir sem þekkja mig vita hvað ég meina. 

Later luvs og Gleðileg Jól ;**

Np: ..:: The Redhouse Painters - I'm Sorry ::..

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 21:23:35 / olof

undir stjörnusalnum, inní Herjólfsdalnum....

 School

Hæ..!

Það gengur fínt að læra, ég og Hanna erum 2svar búnar að taka okkur gott frí frá pásunni. Á fimmtudaginn fórum við á I Adapt og Sign tónleika. Fórum aðallega til þess að sjá Birki syngja en hann er söngvari í I Adapt, en því miður eru þeir eitthvað að tala um það að hætta en það eiga eftir að vera aukatónleikar! Þá ætlum við Hanna að vera búnar að læra alla aðaltextana og syngja með og fara í pittinn í hettupeysum og útvíðum gallabuxum og flatbotna skóm!! ;) En þetta var bara gaman að sjá Birki í ham...  Sign voru líka mjög góðir, gaman að heyra nýju lögin með þeim. Ég sá samt söngvarann reykja fyrir utan og ég þekkti hann ekki útaf hann var ómálaður! ;P Svo í gær fór ég með Hönnu í vísindaferð/námsferð, byrjuðum á því að fara heim til Sölva Páls og sátum þar og sötruðum með Gumma, Sölva og Júlíönu.. síðan var haldið á Breiðina þar sem fullt af körfubolta og fótboltagaurum voru en það skemmdi ekkert fyrir sko.... ;) en það var fínt að komast smá útúr húsi.

Ég fer svo í próf á þriðjudaginn og miðvikudagsmorgun þá ætla ég, Hanna og Birkir að fara norður á Hauganes og vera þar í viku og læra bara eins og við getum fyrir seinasta prófið okkar!! Þar er ekkert internet þannig að við ættum að ná að klára að fara yfir efnið. Síðan verður auðvitað farið í vísindaferð/námsferð á Akureyri. Það þýðir ekkert annað! :)

Já svo var ég í fyrradag að hugsa um þjóðhátíð og var hlusta á uppáhaldsþjóðhátíðarlagið mitt og ábyggilega allra, Lífið er Yndislegt og mér datt í hug að panta gistiheimili í eyjum. Þar sem þetta er fyrsta þjóðhátíðin mín þá ætla ég aðeins að taka því rólega, og svo er svo gott að geta farið í sturtu og geymt fötin sín og hlaðið símann og svona ;) En ég er allavega komin á biðlista. Og ég get ekki beðið! :D

En ég ætla að halda áfram að læra..

Later luvs ;**

School


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 11:40:51 / olof

0/2

 School

Hæhæ!

Við erum loksins búnar með báðar ritgerðirnar þannig að núna er ég bara á fullu að læra fyrir próf! Fyrsta prófið mitt er Fjölskyldur í nútímasamfélagi sem er 11. Des og svo er næsta próf Inngangur að uppeldis- og menntunarfræði sem er 19. Des og þá er ég búin í prófum!! :D Þá tekur við próflokadjamm, jólahlaðborð, jólainnkaup og jólin!;) svo byrjar skólinn aftur 14. Jan. Ég er ekki að trúa því að skólinn sé að verða búinn! Mér finnst ég ekkert búin að vera að gera, eins og ég sé nýbyrjuð í skólanum :P Svo er bara spurning um að flytja í bæinn næsta haust, útaf ef ég á að nenna þessum skóla þá verð ég allavega að minnka þessar strætóferðir.. Ég er ekki að tíma þessu að keyra 3 klst á dag, útaf þetta er alveg langur tími, ég gæti verið búin að læra, fara í þrek og fá mér eitthvað að borða á þessum tíma!! Enda á ég mér mjög takmarkað líf utan skólans og utan strætó.

En hún Hanna ætlar að koma til mín á morgun og við ætlum að læra saman um helgina..  held að það þýði ekkert annað, fínt að fá smá félagsskap í þessu :D  Ballið var á seinustu helgi.. hmm... ég ætla ekkert að fara neitt meira út í það, ég bara mæli ekki með bollu, aldrei framar!!! Og ég mæli ekki með faðmlögum eða sígó eða hiksta eða lærum.. :S En Páll Óskar var algjört æði, hlakka til að fara á hann á Nasa í próflokadjamminu! Þetta var ágætt ball. Segi ekki meira. 8)

Annars hef ég voðalega lítið að segja, ég ætla bara að loka mig inni og læra eins og brjálæðingur... nema 7. Des því þá ætla ég í bíó með Ásdísi :) held ég... En ég ætla að halda áfram að læra svo ég nái að fara yfir allt þetta efni. Comment takk! :$

Later luvs ;**

School

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 13:42:25 / olof

So Real

 Clothes

Hæ..!!

Ég er búin að vera svo ótrúlega upptekin þessa vikuna þannig að ég er ekkert búin að skrifa hérna, það er alveg brjálað að gera í skólanum, prófin byrja 11 desember og svo er ég að vinna í 2 ritgerðum í einu sem báðar eiga að vera 15 bls. Ég hafði ekki einu sinni tíma til þess að fara heim til mín á þriðjudaginn þannig að ég gisti bara hjá Hönnu vinkonu, lærðum á bókhlöðunni til 10 á þriðjudaginn og svo til 7 í gær.. var komin upp á skaga kl. Hálf 10. En þetta borgar sig :) Ég ætla að taka frí í dag og svo er frí í skólanum á morgun og ég ætla að nýta þetta og læra bara heima, ég get unnið í ritgerðunum á netinu þannig að þetta reddast. Ég hef hreinlega ekki orku í það að fara til Reykjavíkur á hverjum degi og eyða 3 klst á dag í það bara að ferðast í strætó!

Það var sagt mér að taka föstudaginn frá, þannig að ég er líklegast að fara að gera eitthvað á morgun, eflaust á breiðina eða jafnvel í afmæli, aldrei að vita ;) Svo fer ég til Reykjavíkur á laugardaginn og ég ætla í bíó, og hjálpa Hönnu að passa fram á mánudag, fínt að geta lært saman. Og gaman að fara í bíó í fyrsta sinn síðan skólinn byrjaði!! Og ég sem elska það að fara í bíó! Hlakka til..

Seinasta föstudag fór ég í afmæli hjá Guðrúnu vinkonu og það var bara mjög fínt! Systir hennar, Sigurrós er æði sem greiddi mér og málaði mig og hélt mér félagsskap þarna útaf ég þekkti bara Guðrúnu og svo hana, svo var haldið niður í bæ og svo fékk ég herbergið hennar Hönnu lánað en hún var á Egilsstöðum yfir helgina. Á laugardaginn var þrítugsafmæli hjá Unnari í Jónsbúð og það var bara rosalega skemmtilegt! Pabbi átti að koma úr sjó núna í þessar viku en hann kom á laugardagskvöldið útaf það var spáð svo brjáluðu veðri og hann hringdi í mig og sagði mér að segja Röggu ekki neitt, hann ætlaði bara að birtast í afmælinu! Og svo kom hann og það var alveg frábært að sjá svipinn á Röggu og Unnari :D en þetta var rosalega gaman, bolla og bjór, brandarar, söngur og gleði :) Síðan var haldið á Breiðina á opnunarpartíið þar, og vá hvað ég dansaði mikið!! Oftast fer maður að dansa þegar eitt lag kemur sem er gott og gaman að dansa við, og svo kemur eitthvað lag sem er ekki skemmtilegt og þá sest maður niður eða fer og fær sér bjór en það kom bara aldrei leiðinlegt lag!! Þannig að maður dansaði alveg helling þarna! Enda vaknaði ég daginn eftir með þvílíkar harðsperrur!! En þetta var rosagaman og hlakka til á morgun ef ég fer. Svo er það auðvitað Páll Óskar 1. Des en það verður seinasta djammið þangað til 26. Des held ég bara...

Hey Hanna er byrjuð að skrifa framhaldssögu um mig á myspace.com/oloflilja og ég læt hana alveg ráða hvað stendur í þessu, ég set þetta bara á netið! Ég spái því að setja nýjan hluta á hverju fimmtudagskvöldi, fer eftir því hvað Hanna getur bullað mikið ;) En ég og Hanna erum búnar að fá mikið hrós fyrir þessa sögu og margir bíða spenntir eftir framhaldinu sem er bara gaman! :) Hanna fékk líka að ráða nafninu á þessari framhaldssögu en hún heitir: Ólöf, a Hero. ;P

En ég ætla að halda áfram með þessar ritgerðir og skella mér svo í ljós :)

Later luvs ;**

Np: ..:: Jeff Buckley – Last Goodbye

Clothes


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Klukkan